Fara í aðalefni

Húsnæðismál

Hvað þurf­um við marg­ar íbúð­ir?

Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á opnum fundi á vegum HMS þann 31. október nk., þar sem fjallað verður um þá þætti sem líta þarf til við mat á þörf og eftirspurn eftir úbúðum til lengri tíma, líkt og mannfjölgun, barneignir og öldrun þjóðar. Fundurinn fer fram í húsakynnum HMS í Borgartúni 21.

Gata í Garðabæ
Gata í Garðabæ

Í fundarboði á vef HMS segir að eitt af meginhlutverkum HMS sé að stuðla að virkni á húsnæðismarkaði með því að styðja við uppbyggingu íbúða um land allt sem mæta mismunandi þörfum ólíkra hópa.

Skráning á fundinn fer fram á vef HMS en þar verður fundinum einnig streymt.

Dagskrá:

  • Íbúðaþörf og íbúðaeftirspurn
    Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS
  • Fækkun íbúa í hverri íbúð kallar á fleiri íbúðir
    Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags

Fundarstjóri: Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingur hjá HMS