Umhverfis Ísland
3.5 milljarða styrkur til að tryggja vatnsgæði á Íslandi
11. desember 2024
Samband íslenskra sveitarfélaga tekur þátt í verkefni sem hefur hlotið um 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.
Verkefnið ber yfirskriftina LIFE ICEWATER. Verkefninu er ætlað að:
- Auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi
- Tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu þegar kemur að vatnamálum
- Bæta vatnsgæði, til dæmis með úrbótum í fráveitu og hreinsun á fráveituvatni
- Fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns
Einn stærsti styrkur sem fengist hefur
Styrkurinn fyrir LIFE ICEWATER er einn sá stærsti sem Ísland hefur fengið. Umfang verkefnanna sem samstarfshópurinn hefur sett saman er samtals um 5,8 milljarðar króna. LIFE áætlun Evrópusambandsins styrkir verkefnið um 60% eða samtals um 3,5 milljarða sem dreifast á samstarfshópinn og verða verkefnin unnin á árunum 2025-2030.
Með LIFE ICEWATER gefast tækifæri til nýsköpunar í stjórnsýslunni með þverfaglegu samstarfi ýmissa aðila með það fyrir augum að bæta vatnsgæði um allt land, auk þess að hámarka ábata samfélagsins af slíkum aðgerðum.
Umhverfisstofnun leiðir verkefnið en samstarfsaðilar, auk Sambandsins, eru Eimur, Gefn, Grundarfjarðarbær, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hveragerðisbær, Isavia, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Matvælastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruminjasafn Íslands, Orka náttúrunnar, Orkustofnun, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, umhverfis,- orku og loftslagsráðuneyti, Veðurstofa Íslands og Veitur, ásamt þremur óbeinum þátttakendum: Sveitarfélagið Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.