Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Greiðsl­ur til sveit­ar­fé­laga úr Úr­vinnslu­sjóði 2023, 2024 og 2025

12. desember 2024

Þann 4. nóvember sl. hélt Úrvinnslusjóður kynningu á greiðslum til sveitarfélaga vegna hreinsunar einnota plastvara á víðavangi fyrir árin 2023 og 2024 annars vegar og greiðslum fyrir sérstaka söfnun umbúðaúrgangs fyrir fyrri hluta árs 2025 hins vegar. Athugið að fyrir hreinsun á víðavangi er fresturinn fyrir gagnaskil 31. desember nk.

Fyrir hreinsun á einnota plastvörum á víðavangi er heildarúthlutun 50,3 mkr. fyrir hvort ár (2023 og 2024) sem skiptast milli sveitarfélaganna eftir íbúafjölda. Til að geta sótt þessa greiðslu þurfa sveitarfélög að sýna fram á einhvern útlagðan kostnað eða greiðslur sem tengjast hreinsun á víðavangi. Farið er nánar yfir kröfur um skil á gögnum til Úrvinnslusjóðs í upptöku af kynningarfundinum sem einnig má í bréfi sem Úrvinnslusjóður sendi til sveitarfélaga 26. september sl. Athugið að fresturinn til að skila inn gögnunum er 31. desember nk.

Varðandi greiðslur fyrir sérstaka söfnun umbúðaúrgangs fyrir fyrri hluta árs 2025 voru kynntar tímabundnar breytingar á fyrirkomulaginu. Úrvinnslusjóður mun um n.k. áramót taka í notkun nýja gagnagátt fyrir skil á upplýsingum frá þjónustuaðilum. Þess er vænst að þegar gáttin verður komin í full not muni komast meiri stöðugleiki á greiðslur til sveitarfélaga, enda byggja greiðslurnar á að gögn frá þjónustuaðilum séu bæði rétt og tímanleg. Til að auka fyrirsjáanleika varðandi greiðslur mun Úrvinnslusjóður, fyrstu 6 mánuði næsta árs (2025), greiða sveitarfélögunum mánaðarlega fjárhæð sem byggir á meðaltalsgreiðslum undanfarinna mánaða. Heildargreiðslur vegna sérstakrar söfnunar 2025 verða síðan gerðar upp í árslok þegar endanleg gögn liggja fyrir.